Viðskiptavinir
Saumastofan Íris ehf. byggir tilvist sína á persónulegum samskiptum, vandaðri vinnu og hóflegri verðlagningu. Við leitumst við að bjóða góða þjónustu, reynum að gera okkar besta fyrir hvern og einn.
Til dæmis gerum við ekki kröfur um lágmarkspöntun, engin pöntun er of lítil, hægt er því sem næst að panta eftir hendinni.
Á Saumastofunni starfar menntaður klæðskeri og starfsfólkið hefur áratuga reynslu í fataframleiðslu og það teljum við vera prýðilega tryggingu fyrir gæðum framleiðslunnar.
Nú þegar seljum við fatnað til fjölda aðila og hafa flestir þeirra verið tryggir viðskiptavinir okkar í mörg ár.
- Dvalarheimili aldraðra
- Fiskvinnslufyrirtæki
- Heilbrigðisstofnanir
- Heilsugæslustöðvar
- Hótel
- Lyfjafyrirtæki
- Læknastofur
- Matvælafyrirtæki
- Mötuneyti
- Sjúkrahús
- Snyrtistofur
- Tannlæknar
- Veitingahús
Saumastofan Íris ehf. býður ávallt nýja viðskiptavini velkomna og heitir þeim góðri þjónustu.
Við hjá Saumastofunni vitum að atvinnulífið gerir eðlilega kröfu til þess að sá fatnaður sem starfsmenn klæðast sé þægilegur og hentugur. Jafnframt að fatnaðurinn sé slitsterkur og auðvelt sé að þrífa hann.
Í hnotskurn eru þetta þau markmið sem við hjá Saumastofunni Írisi ehf. höfum sett okkur.


