Velkomin á vef Saumastofunnar Írisar ehf.
Saumastofan Íris ehf. framleiðir fatnað fyrir atvinnulífið, til dæmis fyrir heilbrigðisþjónustu, matvælavinnslu og fiskvinnslu.
Fyrirtækið á að baki langt og farsælt starf fyrir viðskiptavini sína enda hefur hún að stofni til verið starfandi í meira en 40 ár.
Framleiðsla og hönnun Saumastofunnar Írisar er alfarið íslensk, unnin af fagfólki á Skagaströnd.
Við leggjum metnað okkar í að bjóða persónulega þjónustu og gerum okkar besta til að uppfylla kröfur viðskiptavina okkar. Við gerum engar kröfur um lágmarkspöntun, engin pöntun er of lítil.
Á Saumastofunni Írisi starfar menntaður klæðskeri og það teljum við vera góða tryggingu fyrir gæðum vörunnar og faglegum og vönduðum vinnubrögðum.